Bókanir

My Travel Dates Are: Fixed | Flexible

Veitingastaðurinn VOX Restaurant

VOX veitingastaðurinn er glæsilegur veitingastaður þar sem norrænt hráefti nýtur sín til fulls og þá sérstaklega það íslenska. Eldhúsið á VOX er hið eina í Reykjavík sem fylgir yfirlýsingu um nýja norræna matargerðarlist af sannfæringu. Áhersla er lögð á nærtækt hráefni og endurnýjun hefða en kraumandi metnaður ljær réttunum heimsborgarlegt yfirbragð. Við ræktum beint samband við bændur, fiskimenn, skotveiðimenn og berja- og sveppatínslufólk í villtri, íslenskri náttúru. Hráefnið er því alltaf náttúrulega ferskt. Útfærslan er frumleg og þjónustan fagleg. Við erum einfaldlega fólk sem kann að taka á móti fólki.

Á VOX Bistro er í boði úrval litríkra rétta. Þar er opið frá morgni til kvölds og áhersla lögð á fallegar máltíðir á viðráðanlegu verði. Nútímalega hádegishlaðborðið okkar hefur vakið athygli og VOX Bistro brunchinn á sunnudögum er frægur um alla borg. Borð fyrir, einn, tvo eða heilan hóp. Hér er allt sem þarf fyrir notalega kvöldstund eða hressandi hádegisfund.

Frekari upplýsingar og borðabókanir fara fram hjá Páli Hjálmarssyni í síma 444 5052 eða á netfangið pallh@icehotels.is

VOX Bar

VOX Bistro

VOX Restaurant