Bókanir

My Travel Dates Are: Fixed | Flexible

Peace Tower tilboð á Hilton Reykjavík Nordica

Í tilefni friðar og tendrunar Friðarsúlunnar (e. Imagen Peace Tower) býður Hilton Reykjavík Nordica upp á einstakt tilboð sem gildir frá 9. október til 8. desember. Tilboðið saman stendur af gistingu í glæsilegu herbergi sem býður upp á heillandi útsýni yfir Faxaflóann, Viðey og Friðarsúluna.

Allir þekkja nú orðið Friðarsúluna í Viðey, sem listakonan, tónlistarkonan og friðarsinninn Yoko Ono hannaði og tileinkaði John Lennon. Kveikt er á Friðarsúlunni ár hvert á afmælisdegi John Lennons, 9.október og slökkt á henni aftur á dánardegi hans 8.desember; á þessu tímabili er kveikt á friðarsúlunni frá sólarlagi til miðnættis.

"Imagine all the people living life in peace"  -  John Lennon  

  • Tilboðsverð fyrir eins manns PLUS herbergi með morgunverði, aðeins 12.790,-
  • Tilboðsverð fyrir tveggja manna PLUS herbergi með morgunverði, aðeins 14.900,-

Hægt er að bóka með tölvupósti: Res.ReykjavikNordica@hilton.com eða með því að hringja í s: 444 4000

Við mælum með:

  • Ef þú villt fá enn meiri lúxus er upplagt að gista í Executive herbergi, því fylgir frír aðgangur að okkar glæsulegu útsýnissetustofu Executive Lounge þar sem léttar veitingar standa til boða í einstöku umhverfi. Auk þess fylgir aðgangur að NordicaSpa, þar sem allir fá axlanudd í heita pottinum. Uppfærsla í Executive herbergi kostar aðeins 12.000,- fyrir nóttina.
     
  • Upplagt að panta borð á veitingastaðnum VOX og eiga dásamlegan kvöldverð á þessum margrómaða veitingastað sem er staðsettur á fyrstu hæð hótelsins. Fyrir matseðla og borðapantanir á VOX bendum við á vef VOX - www.vox.is  
     
  • Frá 9.október býður Elding upp á Friðarsiglingar frá sunnudegi til fimmtudags. Farið er frá Skarfabakka öll kvöldin kl. 20:00. Leiðsögumaður tekur á móti gestum og gengur með þeim að verkinu og fjallar um það sem fyrir augum ber. Viðeyjarstofa verður opin, og þar er boðið upp á léttar veitingar. Nánari upplýsingar um siglinguna, verð og bókanir er hægt að finna hér á vef Eldingar: http://www.elding.is/icelandic/videy/

Skilmálar:

  • Takmarkaður fjöldi herbergja í boði
  • Gista þar í 2 nætur
  • Gildir ekki með öðrum tilboðum.
  • Tilboð gildir frá 9. oktober - 8. desember 2011